Eldisþorskur helmingur þorsks 31. október 2004 00:01
Tilraunaeldi á þorski er nú í gangi á fimmtán stöðum víða um land. Á Tálknafirði sjá menn fyrir sér að eftir fimmtán ár verði eldisþorskur helmingur þess þorskafla sem þar verði unnið úr. Við erum á leið að eldiskvíum í Tálknafirði til að fylgjast með því þegar þorskur er fóðraður. Það á að gefa honum loðnu og hún er færð þorskinum samanfrosin í stórum stykkjum til þess að stærstu og gráðugustu þorskarnir klári ekki alla loðnuna áður en hinir komast að. Þannig er reynt að tryggja allir fiskarnir fái svipað að éta og vaxi álíka hratt því ef þeir verða misstórir fara stærri þorskar að éta þá minni. Þorskurinn er nefnilega sagður eitthvert grimmasta rándýr sjávarins og hamagangurinn í eldiskvínni þegar hann ræðst á loðnuna segir sína sögu. Fyrirtækin Þórsberg á Tálknafirði og Oddi á Patreksfirði standa saman að þorskeldinu í nafni fyrirtækisins Þórodds. Þessi þorskur er í svokölluðu áframeldi sem þýðir að hann er veiddur í snurvoð úti á hafi sem smáþorskur en síðan fóðraður áfram í kvíum upp í sláturstærð. Jón Örn Pálsson, sjávarútvegsfræðingur segist telja að aðeins verði haldið áfram með áframeldi í örfá ár. Framtíðin liggi í kynbættum seyðum. Í öðrum kvíum er verið að fóðra þorskseiði en þau fá þurrfóður í kögglum að éta. Heita vatnið í Tálknafirði kemur sér vel í uppeldi seiðanna. Jón Örn segir klárlega um framtíðaratvinnugrein að ræða á þessu svæði. Um fjögur þúsund tonn af þorski berast nú á land á Tálknafirði sem veidd eru í hafi. Tálknfirðingar vonast til að þegar fram líða stundir takist þeim með þorskeldi að tvöfalda þetta magn sem kallar á fjölda starfa. Jón Örn segist telja að á milli 10-15 manns muni vinna beint við þetta og 40-50 allt í allt í vinnslunni. Þetta sé því ein af forsendunum fyrir byggð á svæðinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Sjá meira