Innlent

Skeiðará hefur margfaldast

Hlaupið í Skeiðará er enn að vaxa og hefur rennsli árinnar þegar margfaldast frá því fyrradag. Vatnamælingamenn Orkustofnunar eru þessa stundina á Skeiðarárbrú að mæla rennslið og sagði Sverrir Elefsen nú skömmu fyrir fréttir að áin hefði vaxið töluvert frá því í gær. Hann segir vatnsmagnið orðið eins og það verði mest á sumrin og mikil litur sé kominn í ána. Hann segist ekki geta svarað því hvenær áin nái hámarki, en hún hafi þegar margfaldast og eigi enn eftir að stækka. Fyrstu merki hlaups sáust í fyrradag þegar jarðskjálftamælar sýndu óróa við Grímsvötn í Vatnajökli en þaðan koma Skeiðarárhlaup. Þau eru talin hefjast þegar ísstífla brestur í útfalli Grímsvatna. Mannvirkjum á Skeiðarársandi er ekki talin stafa hætta af hlaupinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×