Söfn, hótel og kartöfluhátíð 29. október 2004 00:01
Heimamenn í Vesturbyggð og á Tálknafirði eru stórhuga eins og Vestfirðinga er háttur. Þeir sætta sig ekki við orðinn hlut og ætla að snúa vörn í sókn. Mikil fækkun hefur orðið á stöðunum síðustu ár og búa nú tæplega 1.500 manns í sveitarfélögunum báðum. Ekki eru mörg ár síðan að íbúatalan var um tvö þúsund. Áður bjuggu þar enn fleiri. Atvinnutækifærum hefur fækkað en undirstaða atvinnulífsins er, og hefur verið, sjávarútvegur. Beinum störfum í greininni hefur fækkað og óbeinu störfunum einnig. Nú er horft til ferðaþjónstu enda getur hún jafnast á við stóriðju ef rétt er á málum haldið. Fyrir um áratug sameinuðust nokkur sveitarfélög og til varð Vesturbyggð. Patreksfjörður og Bíldudalur voru þeirra stærst en Tálknafjörður, sem liggur þar á milli, varð eftir. Heimamönnum þar hugnaðist ekki sængin sú og eru áfram einir og sér. Fyrir vikið er Tálknafjörður oft nefndur Smugan enda smýgur hann inn í Vesturbyggðina miðja. Þessar staðreyndir breyta því ekki að fólk í báðum sveitarfélögunum vinnur saman að ýmsum málum og mæðir þar mest á sókninni sem nú er blásið til. Hagsmunir beggja eru í húfi. Barlómurinn að baki "Við ætlum að koma okkur á kortið og fjölga ferðamönnum inn á svæðið, fá þá til að stoppa og eyða peningum. Það er það sem skiptir máli," segir Guðmundur Sævar Guðjónsson, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar. "Þetta skiptir gríðarlegu máli fyrir byggðirnar." Guðmundur viðurkennir að barlómurinn hafi oft verið við það að leggja menn í rúmið en segir bjartari tíma framundan. "Þetta er allt að batna, við reynum að vera bjartsýn en vitum þó að hlutirnir breytast ekki á svipstundu. Við erum að vinna okkur út úr vandamálunum." Guðmundur hefur varið ævinni á Bíldudal og lifað þar bæði góða tíma og erfiða. "Ég hef gengið í gegnum allt og það hefur verið skelfilegt á stundum að horfa upp á hlutina grotna niður." En nú brosir hann, það eru uppgangstímar framundan. Árni Johnsen var munstraður um borð í skútuna í sumar og falið að kanna ofan í kjölinn hvar matarholurnar væri að finna. Eftir nokkra yfirlegu, gönguferðir um svæðið, samtöl við heimamenn og grúsk í gömlum gögnum lagði hann fram tugi tillagna með haustinu. Sumar eru sameiginlegar fyrir Vesturbyggð og Tálknafjörð en aðrar sérsniðnar fyrir hvort sveitarfélag um sig. Meðal þess sem nauðsynlegt er að gera á báðum stöðum er að reisa hótel með 20 til 40 herbergjum, öðru vísi er ógjörningur að fá fleiri ferðamenn á svæðið. Mörgum finnst nefnilega ómögulegt að sofa á gistiheimili eða í tjaldi og vilja bara það besta. Ætla má að slíkt hótel kosti um hundrað milljónir. Hrafna-Flóka hús Eins og þekkt er í ferðaþjónustu eru góðar samgöngur mikilvægar. Árni Johnsen segir að breyta þurfi þeirri hugsun að leiðin inn á alla Vestfirðina sé um Steingrímsfjörð því ferðamenn sem um þann veg fari skili sér illa niður á Suðurfirðina. Því beri nauðsyn til að gera veginn um Gilsfjörð að "Hliði inn á Suðurfirðina," auk þess sem hraðskreiðari og stærri ferja yfir Breiðafjörð sé krafa nútímans, bæði fyrir ferðaþjónustuna og annað atvinnulíf. Þá gera hugmyndir hans meðal annars ráð fyrir jeppavegi milli Látrabjargs og Rauðasands, vegslóða um Rauðasand og átaki í merkingu gönguleiða. Þörf er á gsm sambandi á Barðaströnd og gefa á út nýtt alhliða ferðamannakort fyrir svæðið. Meðal annarra hugmynda af hefðbundnara taginu eru bygging Hrafna-Flóka húss við Flókalund, uppgröftur rústa Flóka við Brjánslæk, frekari uppbygging á listaverkum og húsum Samúels í Selárdals, opnun safns Gísla á Uppsölum, Þá stingur Árni upp á að nokkur söfn verði opnuð í sveitarfélögunum báðum þar sem sagan verður varðveitt og kynnt. Gert er ráð fyrir að gömul hús verði varðveitt og gerð upp og þeim fundið nýtt framtíðarhlutverk, miðbæir snyrtir og heimasíður bættar enda eru þær oft gluggi að álitlegum áningarstöðum ferðamanna. Að auki leggur hann ríka áherslu á gott aðgengi að náttúruperlum. Brjóstmynd af JohnJohn Árni Johnsen er ekki kunnur fyrir að fara troðnar slóðir og margar hugmynda hans um uppbyggingu ferðaþjónustu á Suðurfjörðum Vestfjarða eru af nýstárlegum toga. Hann leggur t.d. til að brjóstmynd af John Kennedy yngri verði reist við Flókalund. John, sem var sonur nafna síns Bandaríkjaforseta og jafnan kallaður JohnJohn, heimsótti Ísland fyrir nokkrum árum og réri meðal annars á kajak frá Flókalundi. Vakti koma hans athygli innanlands sem utan. Skömmu síðar fórst hann í flugslysi í Bandaríkjunum en almennt var talið að hann myndi feta í fótspor föður síns og ná frama í stjórnmálum. Árni vill leita samvinnu við Bandaríska sendiráðið um verkefnið og hafa samráð við Caroline systur Johns. Af öðru athygliverðu má nefna árlegt stangaveiðimót þar sem aðeins yrði gert út á steinbít, kartöfluhátíð í Sauðlauksdal en þar var voru fyrstu kartöflurnar ræktaðar á Íslandi og útflutning á vestfirsku vatni. Í skýrslu Árna segir að það sé vísindalega sönnuð staðreynd að vatn sé síst mengað á Vestfjörðum af landinu öllu og sér hann fáa meinbugi á frekari rannsóknir verði gerðar og möguleikar vatnssölu til útlanda kannaðir í þaula. Fjölmargar aðrar hugmyndir eru settar fram í skýrslunni og skipta þær raunar tugum eins og áður sagði. Það er í höndum sveitarstjórnarmanna vestra að ákvarða hvað skuli gera en víst er að hugur er í mönnum og því meiri líkur en minni á að ýmislegt verði að veruleika. Tálknafjörður.MYND/VilhelmGamla smiðjan á Bíldudal.MYND/VilhelmÁrni Johnsen við eitt verka Samúels í Selárdal.MYND/Vilhelm
Fréttir Innlent Mest lesið Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglunds Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Innlent Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Innlent Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Innlent Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Innlent Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Innlent Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Innlent Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Innlent Segja ógnarstjórn ríkja á Þjóðminjasafninu Innlent Fleiri fréttir Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglunds Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Sóttu veikan mann í rússneskan togara Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Rannsókn lokið í manndrápsmáli Lögðu hald á nokkuð magn fíkniefna og hnífa Sláandi tölur: Kyrkingartökum og eltihrellum fer fjölgandi Mætti með steikarhníf á leikskóla Kyrkingartök og elltihrellahegðun fara vaxandi og myndband af áreitni í miðborginni Grill í ljósum logum úti á svölum Vilja endurbyggja verkstæðið en nágrannar mótmæla harðlega Margra kílómetra bílaröð eftir árekstur á Vesturlandsvegi Halda framkvæmdastjóra Félagsbústaða þrátt fyrir alvarlegt vantraust Telja að maðurinn sé fundinn „Þetta er mjög þungt og erfitt“ „Ég vara mjög við því að menn beiti þessu úrræði“ „Verið að búa til óseðjandi kerfi þar sem bátum mun fjölga“ Eldur kviknaði í vörubíl á Reykjanesbraut Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi „Yndisleg kvöldstund í þessum þunga harmi okkar“ Leit hefst á ný eftir hádegi Klúðursleg rannsókn lögreglu leiddi til sýknu skipstjóra Reknir fyrir að vinna ekki nógu mikið Færa boðuð gagnmótmæli gegn rasisma vegna ofbeldisógnar Telja manninn hafa örmagnast við sjósundsæfingar Sjá meira