Innlent

Friðargæsluliðarnir á heimleið

Íslensku friðargæsluliðarnir þrír, sem særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Kjúklingastræti í Kabúl á laugardag, koma heim í dag. Af því tilefni var slegið upp kveðjuhófi, þeim til heiðurs og lyftu menn glösum að skilnaði. Létt stemning var í hópnum þrátt fyrir ófarirnar á laugardag og þær hörmungar sem af þeim hlutust. Hallgrímur Sigurðsson, yfirmaður liðsins, sagði að ferð friðargæsluliðsins inni í borgina hafi ekki verið tímamæld en Fréttablaðið hefur greint frá því að friðargæsluliðarnir hafi beðið Hallgríms í um klukkustund fyrir utan verslun í einu hættulegasta hverfi Kabúl. Þá minnist hann þess ekki að rekið hafi verið á eftir honum eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Hann segir hópinn hafa strax yfirgefið staðinn til að koma Íslendingunum á spítala. Afganska lögreglan hafi hlúð að öðrum sem slösuðust í árásinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×