Innlent

Tunglmyrkvinn sást víða

Tunglmyrkvinn sást vel víðast hvar á landinu í nótt en skyggni tók að versna á höfuðborgarsvæðinu upp úr klukkan tvö í nótt þegar sjálfur almyrkvinn var að hefjast. Hann sást hins vegar vel víða á landinu. Eitthvað af fólki eyddi nóttinni austur á Þingvöllum þar sem skyggni hélst gott og engin truflun var af rafljósum. Tunglmyrkvar eiga sér stað þegar tunglið gengur inn í skugga jarðar á sama tíma og jörðin er stödd á milli sólar og tungls og tungl er fullt. Næsti tunglmyrkvi verður að líkindum í mars árið 2007. Hægt er að horfa á myndir frá myrkvanum úr morgunsjónvarpi Stöðvar 2 með því að smella á hlekkinn hér að neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×