Innlent

Met í fatasöfnun Rauða krossins

Mikil aukning hefur orðið í fatasöfnun Rauða kross Íslands milli ára. Í fyrra söfnuðust 660 tonn af fötum, en nú stefnir í að um 800 tonn safnist á árinu. "Við reiknum með að senda frá okkur svona 75 gáma til útlanda á árinu," segir Örn Ragnarsson, formaður fataflokkunar hjá Rauða krossinum. Hann segir vonir standa til að afrakstur fatasölunnar til útlanda verði meiri en í fyrra, þegar hann var 5,7 milljónir, en þar spilar óhagstæð gengisþróun þó inn í. "Hins vegar er verslunin okkar á Laugavegi 12 að skila tölvuvert meiru heldur en í fyrra, en þá var heildarvelta hennar um 6 milljónir." Rauði krossinn úthlutar einnig fatnaði til bágstaddra. "Í fyrra voru um 600 fjölskyldur sem fengu úthlutað fatnaði og í þeim yfir þúsund börn. Einnig sendum við föt í fangelsin og Byrgið, auk þess sem lögregla og neyðarmóttökur sjúkrahúsa fá hjá okkur föt," segir Örn. Örn segir orsakir aukinnar fatasöfnunar ekki liggja fyrir, en bendir á að fólk hreinsi gjarnan til í fataskápum hjá sér áður en skipt er um húsnæði. "Sjálfsagt eru þarna samverkandi þættir. Við erum líka orðin miklu sýnilegri á Sorpustöðvunum," segir hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×