Innlent

Fundur á eftir

Deilendur í kennaradeilunni hafa verið boðaðir til fundar hjá Ríkissáttasemjara í dag, meira en viku fyrr en ætlað var. Samninganefnd grunnskólakennara, stjórn Kennarasambandsins og formenn svæðafélaga áttu með sér fjögurra klukkustunda fund í gær og ætlar samninganefndin að halda undirbúningsfund fyrir hádegi. Í gær var ekki búist við miklum árangri af fundinum hjá ríkissáttasemjara í dag þar sem hvorugur deilenda sagðist hafa eitthvað nýtt fram að færa og ekki var vitað til að sáttasemjari myndi leggja fram drög að nýrri sáttatillögu, eins og hann gerði í síðustu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×