Konur með Sirrý 21. október 2004 00:01
Sjónvarpskonan Sirrý er umvafin kvenfólki í störfum sínum á Skjá einum og sannast á þætti hennar, Fólki, að konum er jafn vel treystandi fyrir gerð sjónvarpsþátta og körlum. Jafnvel betur. Í stéttarfélögum blaða- og fréttamanna eru þrjár konur á móti hverjum sjö körlum og karlar eru fjölmennari í flestum tæknistörfum fjölmiðlanna. Á þessu eru þó undantekningar og eru nokkur tímarit og Fólk með Sirrý glögg dæmi um það. Að Fólki vinna að jafnaði tíu konur. Fer þar Sirrý sjálf fremst í flokki en að baki henni stendur vösk sveit kvenna sem vinnur þau fjölbreyttu verk sem unnin eru aftan við myndavélarnar. Sjálf segir Sirrý að þetta stafi ekki af sérstökum aðgerðum, mál hafi bara æxlast svona. "Hér á Skjá einum eru engin sérstök karla- eða kvennastörf. Konur eru aftan við myndavélarnar og í hljóðstjórn en þetta eru hefðbundin karlastörf á flestum miðlum. Hjá okkur ganga bæði kynin í öll störf og það vill bara þannig til að fleiri konur hafa valist til starfa í þættinum hjá mér." Sirrý segir þó hugsanlegt að sú staðreynd að framleiðslustjóri Skjásins sé konan Kolbrún Jarlsdóttir ráði einhverju. "Hún laðar kannski að sér menntaðar og færar konur. Hún þekkir auðvitað svo margar konur í faginu." Enginn munur er á að vinna með konum eða körlum að mati Sirrýjar, sem þó fagnar kvennafansinum í vinnunni enda umvafin karlmönnum á heimili sínu, þar sem eru eiginmaður og tveir synir. Hún er hins vegar þeirrar skoðunar að blöndun kynjanna sé affarasælust. "Mér finnast bestu vinnustaðirnir þeir þar sem konur og karlar eru í jöfnum hlutföllum og einnig fólk á öllum aldri. Andinn á slíkum stöðum er miklu betri." Konur eru oftar gestir í þætti Sirrýjar en karlar og blæs hún á þá bábilju að örðugt sé að fá kynsystur hennar í viðtöl. "Þetta er bara spurning um hvernig maður ber sig að og undirbýr viðmælendurna," segir hún. Og að sama skapi horfa fleiri konur en karlar. "Karlarnir eru hins vegar duglegri við að skrifa mér póst með ábendingum, hrósi eða gagnrýni og á því kann ég enga skýringu," segir Sirrý en gerir lítið úr þeirri tilgátu blaðamanns að þeir séu bara skotnir í henni. "Ætli þeir séu ekki bara hugaðri í þessum efnum."
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira