Geðsjúkum fanga vísað á brott 15. október 2004 00:01
Geðsjúkum kvenfanga var vísað frá geðdeild Landspítala eftir klukkustundardvöl þar, þrátt fyrir tvær alvarlegar sjálfsvígstilraunir. Landlæknir rannsakar málið. Sex til átta fangar í íslenskum fangelsum eru í raun ófærir um að afplána refsingu sína þar inni. Í bréfi sem fangelsismálastjóri skrifaði heilbrigðisráðherra í sumar kemur fram að þessir sex til átta fangar eigi við svo alvarlega geðsjúkdóma að stríða að þeir séu ófærir um, tímabundið eða til langframa, að afplána refsingu sína í fangelsum. Í skýrslu alþjóðlegrar eftirlitsnefndar evróopuráðsins um pyntingar á föngum og á geðsjúkrahúsum árið 1998 kom fram að íslenskir fangar ættu erfitt með að fá flutning á geðsjúkrahús þegar þeir væru veikir á geði. Það væri vegna tregðu stjórnenda geðsjúkrahúsa til að taka við föngum og vista á almennum geðdeildum. Samkvæmt heimildum fréttastofu var eftirlitsnefndin aftur hér á ferðinni í sumar og hafði þá svipaðar athugasemdir. Nýja skýrslan er hinsvegar ekki tilbúin. Fangelsismálastjóri staðfestir í raun í bréfinu að þetta ástand sé enn við lýði og segir að komið hafi fyrir að þegar geðlæknar hafi sent eða vistað fanga á geðdeild, hafi þeim annað hvort verið snúið við á tröppunum eftir nokkurar klukkustundir eða þeir sendir aftur í fangelsið. Það sé hinsvegar óviðunandi, ekki einvörðungu gagnvart sjúklingunum heldur einnig gagnvart starfsmönnum fangelsanna og öðrum föngum. Þess er farið á leit í bréfinu að tryggt sé að til sé viðeigandi stofnun fyrir þessa einstaklinga. Landlæknir hefur kallað eftir skýringum frá Landspítalanum vegna kvenfanga sem var sendur aftur í kvennafangelsið í Kópavogi í vor þrátt fyrir tvær alvarlegar sjálfsvígstilraunir. Fangelsismálastofnun kvartaði við Landlækni vegna málsins en eins og kemur fram í bréfi Fangelsismálastjóra til ráðherra er það ekki hið fyrsta sinnar tegundar.
Fréttir Innlent Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent Fleiri fréttir Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Sjá meira