Kjalnesingar átelja seinagang 14. október 2004 00:01
Íbúasamtök Kjalarness átelja þann seinagang sem orðið hefur í lagningu Sundabrautar. "Við erum orðin þreytt á marg endurteknum loforðum um gerð Sundabrautar," segir í ályktun samtakanna sem afhent hefur verið borgarstjóra Reykjavíkur. Hafsteinn Númason, stjórnarmaður í íbúasamtökunum, segir að Sundabrautin hafi verið notuð sem gulrót við sameiningu Kjalarneshrepps og Reykjavíkurborgar og að tími sé kominn til að efna loforðin. Upphaflega hafi átt að byrja á Sundabrautinni árið 2002 en ekkert hafi gerst. "Við viljum fara að sjá einhverja hreyfingu á þessu og skorum á þingmenn landsbyggðarinnar að taka undir með okkur," segir Hafsteinn. "Það er ekki bara verið að gera þetta fyrir Kjalnesinga heldur landsmenn alla. Þetta styttir leiðina vestur um land um tuttugu kílómetra." Til að flýta fyrir framkvæmdum leggja íbúasamtökin til að byrjað verði á framkvæmdum á Kjalarnesi. Það sé hægt þó ekki sé búið að ákveða nákvæmlega legu Sundabrautarinnar sunnan megin, hvort byggð verði hábrú, botngöng eða farin svokölluð eyjaleið.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Fleiri fréttir „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Sjá meira