Actavis sakað um kúgun 14. október 2004 00:01
Actavis er sakað um að hafa kúgað verkamenn í Búlgaríu og brotið á þeim samninga. Starfsgreinasambandinu hefur borist fyrirspurn vegna meintra brota fyrirtækisins þar. Lögmaður Actavis segir verkalýðsfélög í Búlgaríu ekki hafa gert athugasemdir við starfsemi fyrirtækisins. Lyfjafyrirtækið Actavis, sem áður hét Pharmaco, hefur um nokkurra ára skeið átt og rekið lyfjaverksmiðju í Búlgaríu. Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að sambandinu hafi borist kvartanir þaðan vegna fyrirtækisins. Nánar aðspurður um hvers kyns kvartanir þetta eru segir Halldór að um sé að ræða kvartanir um kúgun og brot á samningum. Hann segir að þeir hafi sett sig í samband við systrafélög sín á Norðulöndunum vegna málsins. Halldór segir að fulltrúar Starfsgreinasambandsins hafi rætt þetta við talsmenn Actavis en engin lausn fengist. Hann segir engan mun á þessu og sambærilegum ásökunum í garð erlendra fyrirtækja sem starfi hér á landi; allt séu þetta alvarleg mál. Hinum finnst peningahyggja skína þarna í gegn. Í tilkynningu frá Actavis vegna málsins segir að flestar athugasemdanna við starfsemi fyrirtækisins hafi átt við nauðsynlegar hagræðingaraðgerðir félagsins sem tryggi störf og samkeppnishæfni í Búlgaríu. Actavis hafi tekið tvö atriði sem ekki hafi samræmst stefnu félagsins til sérstakrar skoðunar: annars vegar að starfsmönnum hafi verið hótað brottrekstri ef þeir væru í verkalýðsfélögum og hins vegar að þeir væru hvattir til að ganga í verkalýðsfélög sem studd væru af fyrirtækinu. Í ljós hafi komið að enginn fótur hafi verið fyrir þessum ásökunum og að jafnframt hafi verið staðfest að verkalýðsfélög í Búlgaríu hafi ekki gert athugasemdir við Actavis þar.
Fréttir Innlent Mest lesið Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Selenskí mun funda með Trump Erlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fleiri fréttir Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ Sjá meira