Höfum verið illilega plataðir 14. október 2004 00:01
Sveitarstjórn Ölfuss hefur hótað að segja sig úr Sambandi sunnlenskra sveitarfélaga ef önnur sveitarfélög á svæðinu styðji sig ekki í þeirri kröfu að Sorpstöð Suðurlands fari að gildandi deiliskipulagi hvað varðar hæð sorpfjallsins, að sögn Hjörleifs Brynjólfssonar, oddvita sveitarstjórnar Ölfuss. Sveitarstjórnin hefur tilkynnt kjörnum fulltrúum aðildarsveitarfélaga stöðvarinnar að henni verði lokað 25. október og hafin innheimta dagsekta upp á 42,6 milljónir króna ef ekki náist samkomulag um úrbætur. "Sorpstöðin hefur fullgilt starfsleyfi frá umhverfisráðuneytinu," sagði Einar Njálsson, stjórnarformaður stöðvarinnar. "Þegar það var gefið út á sínum tíma gerði sveitarfélagið Ölfus þá athugasemd að ekki væri tilgreind þar hæð urðunarreinanna. Því svaraði umhverfisráðuneytið þannig að þar sem hæð þeirra væri ekki tilgreind í deiliskipulagi sæi ráðuneytið ekki ástæðu til að takmarka hæð þeirra í starfsleyfinu. Í ljósi þessa teljum við okkur alls ekki vera að brjóta deiliskipulag." Einar sagði að stjórn sorpstöðvarinnar teldi sig hafa reynt mjög mikið til þess að ná samkomulagi um hana en það hefði ekki gengið eftir. "Hvað varðar innheimtu dagsektanna set ég spurningarmerki við að þeir hafi möguleika á að innheimta þær eftir að hafa í svo langan tíma ekki sýnt neina tilburði til þess. Á sínum tíma, er þeir lögðu á þessar meintu dagsektir, kærðum við það til réttra yfirvalda. Þegar við vorum búnir að vera í viðræðum við þá um lausn máls stöðvarinnar og höfðum kynnt fyrir þeim tillögu að útfærslu á lögun reinanna, hæð þeirra og frágangi öðrum, fengum við þeirra umsögn þannig að þeir væru búnir að fallast á þessar útfærslur. Einungis væri formsatriði að ganga frá staðfestingu á þeim. Í ljósi þess óskaði bæjarstjórinn, sem þá sat í stjórn stöðvarinnar, eftir því við okkur hina sem þar sátum, að við drægjum kæruna vegna dagsektanna til baka. Við létum til leiðast til að gera það í góðri trú. En við sjáum nú að við höfum verið allillilega plataðir í því máli."
Fréttir Innlent Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Sjá meira