Grásleppuskúrarnir standi 14. október 2004 00:01
Allt bendir til að grásleppuskúrarnir við Ægisíðu í Reykjavík standi þar áfram, líkt og þeir hafa gert um árabil, þeir elstu raunar í meira en öld. Skúrarnir hafa látið mjög á sjá og eru lýti í augum sumra en aðrir sjá í þeim fegurðina og söguna. Takast þar á gamalkunnug sjónarmið um mengun eða minjar. Í grein í Morgunpóstinum, vef VG í Reykjavík, hvetur Stefán Pálsson, sagnfræðingur, til lagfæringa á skúrunum og öðrum mannvirkjum sem við þá standa. "Með vinnu og alúð mætti endurvekja blæ þess tíma þegar róið var úr annarri hverri vör og fiskiskúrar stóðu meðfram allri strandlengju borgarinnar," segir í greininni. Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og sérfræðingur í sögu Reykjavíkur, er sama sinnis. "Mér finnast skúrarnir setja ákveðinn sjarma á þetta svæði. Þeir eru orðnir fastir punktar í Reykjavík og tengjast minningum fólks," sagði Guðjón í samtali við Fréttablaðið. Fjallað hefur verið um framtíð grásleppuskúranna innan borgarkerfisins. Ellý K. J. Guðmundsdóttir, forstöðumaður Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, segir reynt að leysa málið þannig að um það ríki sátt. "Ég held að það sé enginn ágreiningur um þetta, allir eru sammála um að þetta eru minjar en þær líta ekki vel út í augnablikinu." Guðnýju Gerði Gunnarsdóttur, borgarminjaverði, finnst full ástæða til að varðveita skúrana og gera þá upp svo prýði sé af á því fjölfarna útivistarsvæði sem Ægisíðan er. "Þetta eru minjar um sjósókn við Skerjafjörðinn og merkur þáttur í sögu borgarinnar." Lengi var róið til fiskjar frá Ægisíðunni og reyndar ekki nema um fimm ár síðan Björn Guðjónsson lagði árar í bát. Var hann síðasti Reykvíkingurinn sem gerði út frá vör en varir eru lendingarstaðir báta við strendur. Útgerðin við Ægisíðuna gekk mann fram af manni, Björn tók við af föður sínum sem tók við af föður sínum.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira