Áttunda sæti í samkeppnishæfni 13. október 2004 00:01
Ísland er í áttunda sæti yfir samkeppnishæfustu ríki heims. Það hefur færst upp um fjögur sæti frá því í fyrra, meira en nokkurt annað ríki í Vestur-Evrópu. Þetta kemur fram í árlegu yfirliti World Economic Forum um samkeppnishæfi rúmlega 100 ríkja í heiminum. Listinn og skýrslan voru gerð opinber í dag. Efstir á listanum trjóna Finnar, annað árið í röð, þar á eftir koma Bandaríkin, Svíþjóð og Danmörk. Þessi fjögur ríki halda stöðu sinni frá í fyrra. Þá kemur Tævan, síðan Singapúr og Sviss er í sjöunda sæti. Þá er komið að Íslandi og þar á eftir koma Noregur og Ástralía. Stökk Íslands á meðal toppþjóðanna er mest á milli ára, eða fjögur sæti. Sterk staða Norðurlandaþjóðanna vekur einnig athygli en þær skipa sér allar á topp tíu. Ef litið er á stöðu þeirra fimmtán þjóða sem voru í Evrópusambandinu nú og í fyrra sést að engin þeirra tekur viðlíka stökk og Ísland. Það sem meira er, margar þeirra falla neðar á listann. Í skýrslunni er leitað svara við því af hverju framleiðni aukist ekki á meðal þjóða Evrópu á meðan slíkt hafi gerst í Bandaríkjunum. Skýringin sé meðal annars þungt stofnanaveldi í Evrópu, skortur á nýhugsun og sköpun og skortur á æskumenningu þar sem ungt fólk vinni með námi líkt og það geri í Bandaríkjunum. Svo verða menn kannski að svara því sjálfir hvoru forminu Ísland líkist meira. En aftur að Íslandi og góðri stöðu þess. Skýrsluhöfundar segja hana einkum því að þakka að aðgengi að lánsfé sé gott hér á landi og að samdráttur hafi ekki orðið hér líkt og víða annars staðar. Hins vegar séu vextir háir og sparnaður fremur klénn. Þá hefur tæknivæðing dregist saman hér á landi í samanburði við aðrar tæknivæddar þjóðir en á móti því vegur að hlutfall háskólanema hækkar ört hér á landi.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Sjá meira