Sex stórfyrirtæki hafa sent nefnd 13. október 2004 00:01
Sex erlend stórfyrirtæki hafa sent sendinefndir hingað til lands á þessu ári til að kanna kosti þess að hefja hér stóriðju. Fimm þeirra áforma að reisa álver en eitt leitar að lóð undir manganverksmiðju. Hátt álverð allt þetta ár og spár um stöðuga aukningu álnotkunar í heiminum á næstu árum eiga vafalaust þátt í að skýra mikinn áhuga erlendra álfyrirtækja á Íslandi. Listi yfir þau fyrirtæki sem sent hafa sendinefndir á þessu ári til að skoða stóriðjukosti á Íslandi segir sína sögu. Fulltrúar Rio Tinto Zink funduðu í Reykjavík í marsmánuði með iðnaðarráðuneyti og Landsvirkjun um álver, sendinefnd Rusal heimsótti Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur í apríl en þetta rússneska félag er þriðji mesti álframleiðandi heims, og fyrirtækið BHP-Billiton hefur sent tvær sendinefndir til Íslands á þessu ári, í maí og nú í byrjun október, og heimsóttu þær Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur í bæði skiptin. Brasilískt málmfyrirtæki, CVRD, fundaði með fulltrúum stjórnvalda í Reykjavík í júní um möguleika á að reisa manganverksmiðju hér á landi. Sendinefnd á vegum Alcoa, sem reisir nú álver á Reyðarfirði, fór í Skagafjörð, Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur í júlí og skoðaði mögulegar álverslóðir á Norðurlandi. Og Century Aluminum, sem nýlega eignaðist Norðurál, sendi menn út af örkinni í september til viðræðna við heimamenn í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hefur lýst þeirri stefnu sinni að næsta stóriðja skuli rísa á Norðurlandi í framhaldi af uppbyggingunni á Austurlandi. Ólíkt því sem gerðist hjá Austfirðingum, sem sameinuðust um að bjóða fram Reyðarfjörð undir álver, er kapphlaup hafið milli héraða á Norðurlandi um hvar skuli staðsetja álver. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar býður fram lóð á Dysnesi, skammt frá Hjalteyri, en Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga býður fram lóð rétt norðan Húsavíkur. Þá hafa Skagfirðingar blandað sér inn í umræðuna með stóriðjulóð sunnan Kolkuóss. Ágreiningur er hins vegar innan meirihluta Sjálfstæðismanna og Vinstri-grænna í sveitarstjórn Skagafjarðar um afstöðu til stóriðju og virkjana í héraðinu og hefur hann leitt til þess að meirihlutasamstarfið er í uppnámi.
Fréttir Innlent Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Mætti með eggvopn á skemmtistað Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Sjá meira