Innlent

Vandinn liggur annars staðar

Aðalsteinn Baldursson, talsmaður fiskvinnslufólks hjá Starfsgreinasambandinu, gerir alvarlegar athugasemdir við þann málflutning Sigurgeirs B. Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, að kjarasamningar við sjómenn skýri að verulegu leyti bága stöðu fiskvinnslu í landi. "Ég mótmæli því harðlega að menn skuli stilla sjómönnum upp gegn landverkafólkinu með þessum hætti. Það er einfaldlega ekki rétt að kjarasamningar sjómanna haldi niðri launum landverkafólks," segir Aðalsteinn. "Vandi landvinnslunnar liggur annars staðar," bætir hann við. Hann segist hins vegar fagna því að kominn sé fram aðili hjá Samtökum fiskvinnslustöðva sem telji að hækka beri laun fiskverkafólks. "Ég held að menn ættu að slaka á þessum arðgreiðslum út úr fyrirtækjunum og hugsa meira um starfsfólkið," segir Aðalsteinn. Sigurgeir flutti erindi á ársfundi Samtaka fiskvinnslustöðva um síðustu helgi þar sem hann spáði endalokum landvinnslu ef samtök sjómanna léðu ekki máls á breytingum á sínum kjarasamningum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×