Innlent

Norrænar áherslur lagðar

Í dag hefst á Hótel Nordica ráðstefna um öryggi og heilnæm matvæli og norrænar áherslur í þeim efnum. Ráðstefnan er haldin á vegum sjávarútvegs-, landbúnaðar- og umhverfisráðuneytis í samvinnu við norrænu ráðherranefndina. Að sögn Sigríðar Stefánsdóttur, deildarstjóra matvælasviðs í umhverfisráðuneytinu, munu nokkrir af virtustu sérfræðingum heims í þessum málaflokki flytja erindi. Ráðstefnunni lýkur á morgun en í kjölfarið verður unnin skýrsla um norrænar áherslur í þessum málaflokki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×