Innlent

Verða í fjóra daga til viðbótar

Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar ætla rússnesku herskipin að vera á svæðinu út af Þistilfirði í fjóra daga til viðbótar. Þau fylktu aftur liði út af firðinum í nótt. Skipherrann á rússneska beitiskipinu Pétri mikla hafði áður sagt við Landhelgisgæsluna að hann myndi halda frá Íslandi í gærkvöld. Herskipin eru sem fyrr nokkrar mílur fyrir utan 12 mílna landhelgislínuna og fylgist varðskip með framvindu mála.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×