Innlent

Eldur í Hábergi

Töluverðar skemmdir urðu á nótaskipinu Hábergi þegar eldur kom upp í skipinu er það var í slipp í Póllandi í fyrradag. Engan sakaði en eldurinn kviknaði í íbúðum skipverja. Samherji keypti skipið nýverið á Hjaltlandseyjum og er unnið að endurbótum á því í Póllandi, sem átti að ljúka fyrir mánaðamót, en afhending tefst að líkindum vegna brunans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×