Innlent

Pétur mikli enn við landið

Skipherrann á rússneska beitiskipinu Pétri mikla stóð ekki við þau orð sín við Landhelgisgæsluna í fyrradag að hann myndi halda frá landinu undir kvöld í gær. Klukkan tíu í gærkvöldi lá skipið enn fyrir akkerum út af Þistilfirði, ásamt fjórum öðrum herskipum. Óstaðfestar fréttir herma að herskipin séu að bíða eftir öðrum rússneskum herskipum sem hafa verið við æfingar á suðlægari slóðum og muni síðar halda til norðurs, líkt og flugmóðurskipið og þrjú önnur skip úr hópnum hafa gert.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×