Innlent

Kirkjuþing ræðir peningaprestinn

Séra Guðjón Skarphéðinsson á Staðastað á Snæfellsnesi vill að Kirkjuþing ræði málefni séra Láru G. Oddsdóttur á prestssetrinu Valþjófstað. Lára fékk rúmar átta milljónir króna í eigin vasa af fimmtán milljóna bótum sem Landsvirkjun greiddi til Valþjófsstaðar. Lára er í fríi á Spáni en Guðjón mætir á Kirkjuþing. "Þetta mál séra Láru er hálfgert vandræðamál og ég hef ákveðið að bera fram fyrirspurn á Kirkjuþingi til biskups til að fá skoðun hans á því," segir séra Guðjón, sem er einmitt varamaður séra Láru á Valþjófsstað í Prestsetrasjóði þar sem bótamál Landsvirkjunar var afgreitt. Vék séra Lára þá sæti en stillti sjóðstjórninni hins vegar upp við veg og hótaði að hirða allar bæturnar fengi hún ekki helming. Varð stjórnin að láta undan þó það væri mörgum stjórnarmönnum þvert um geð. Nánar er fjallað um þetta mál í DV í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×