Bera þau kjarnavopn? 12. október 2004 00:01
Óljóst er hvort rússnesku herskipin sem verið hafa við æfingar norðaustur af Íslandi beri kjarnorkuvopn. Eitt skipanna er þó kjarnorkuknúið og hefur getu til að bera tuttugu kjarnorkuflaugar. Líklegt er að herskipin verði við Íslandsstrendur í einhverja daga til viðbótar. Fjögur rússnesk herskip halda ennþá til norðaustur af Íslandi. Miðað við upplýsingar sem skipherrar þeirra gáfu Landhelgisgæslunni í gær ætluðu þau að fara í kvöld í kjölfar flugmóðurskipsins Admiral Kuznetsovs og tveggja annarra herskipa sem þegar hafa siglt á brott. Utanríkisráðuneytinu hafa hins vegar borist fregnir af því að þessi fjögur skip bíði nú tveggja annarra skipa sem verið hafa í heimsóknum í Evrópuhöfnum áður en öll hersingin heldur heim til Rússlands. Rússneska beitiskipið Pétur mikli sem enn lónar 25 sjómílur undan Íslandsströndum er kjarnorkuknúið skip og ber alla jafna tuttugu kjarnorkuflaugar. Talsmaður rússneska sendiráðsins segist ekki hafa nægar upplýsingar til þess að svara því hvort eitthvert skipanna beri kjarnorkuflaugar. Það eina sem hann viti sé að eitt skipanna sé flugmóðursskip og verið sá að æfa flugmenn í að taka á loft og lenda. Norskar og breskar herflugvélar hafa fylgst grannt með ferðum rússneska norðurflotans við Ísland en þessar flugvélar hafa þó engin tök á því að sjá hvort kjarnorkuvopn eða stýriflaugar eru með í för. Slíkt er ekki hægt að staðfesta nema með því hreinlega að fara um borð. Líklegt er að þessar eftirlitsvélar hafi einnig hlerað það hvort kafbátar hafi fylgt flotanum hingað til lands. Vitað er að kafbátar tóku þátt í sameiginlegri æfingu Rússa og Bandaríkjamanna sem fram fór áður en þessi æfing við Ísland hófst, en það er óljóst hvort þessir kafbátar eru nú einnig hér við land. Æfingin við Ísland er hluti af einni stærstu heræfingu rússneska flotans síðustu árin, Atlantika 04, en henni lýkur ekki fyrr en 25. október.
Fréttir Innlent Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira