Innlent

Próföstum og prestssetrum fækkað

MYND/Vísir
Kirkjuþing hefst á sunnudaginn en samkoman fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar. Ýmis mál liggja fyrir þinginu og má búast við heitum umræðum um sum þeirra. Að sögn Þorvalds Karls Helgasonar, biskupsritara, verður verður sérstök áhersla lögð á innri mál kirkjunnar. Þannig verða fræðslu- og tónlistarmál í öndvegi og er búist við að fjárveitingar til þessara málaflokka verði auknar til samræmis við það. Prestssetrasjóður hefur óskað eftir heimild til að fá að selja sjö prestssetur og hluta úr áttundu jörðinni. Ýmis sögufræg býli eru þar á meðal, svo sem Bergþórshvol í V-Landeyjum, Prestbakki við Hrútafjörð, Vatnsfjörður við Ísafjarðardjúp og Árnes á Ströndum. Búist er við að styr muni standa um tillögur um að fækka prófastdæmum landsins úr sextán í tíu og þannig er gert ráð fyrir að Vestfirðir verði eitt prófastdæmi. Endanleg ákvörðun um málið verður þó ekki tekin á þinginu heldur fer það í héruðin til umsagnar fái það til þess brautargengi. Þingið fer fram í Grensáskirkju dagana 17.-22. október og situr það 21 fulltrúi, þar af tólf leikmenn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×