Innlent

Telja sjálfstæðismann vanhæfan

Vinstri grænir í sveitarstjórn Skagafjarðar telja að Bjarni Maronsson, sveitarstjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem lagði fram tillögu um að fara með Villinganesvirkjun í kynningu, sé vanhæfur í málinu. Tillagan var samþykkt og í kjölfarið hangir meirihlutasamstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins á bláþræði. Vinstri grænir telja að með því að samþykkja virkjunaráformin hafi sjálfstæðismenn brotið samstarfssamning sem flokkarnir gerðu áður en þeir mynduðu meirihluta í sveitarstjórninni. Það er fyrirtækið Héraðsvötn ehf. sem hefur uppi virkjunaráform við Villinganes. Fyrirtækið er að hluta í eigu Kaupfélags Skagfirðinga en þar situr Bjarni í stjórn og er varaformaður. Vegna þessara tengsla hafa Vinstri grænir farið fram á það við félagsmálaráðuneytið að það úrskurði um hæfi Bjarna í málinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×