Innlent

Lögbann á sjómenn

Lögbann hefur verið sett á aðgerðir sjómannasamtaka og verkalýðsfélaga við löndun úr togaranum Sólbaki frá Akureyri. Útgerðarfélag skipsins fór fram á bannið hjá sýslumanninum á Akureyri í gær. Lögbannið tekur þegar gildi en útgerðarfélagið þarf að höfða mál því til staðfestingar innan viku. Sólbakur landar á Akureyri í dag og stoppar í höfn í tvo til þrjá daga vegna lagfæringa um borð. Sævar Gunnarsson, formaður , segir að félagsmenn hans muni hlíta lögbanninu. "Ég veit ekki hvenær við hefjum aðgerðir aftur en við erum með lausa kjarasamninga og það kemur til skoðunar að nota okkur það."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×