Líka fótboltabæir 1. október 2004 00:01
Það er ávallt glatt á hjalla þegar kemur að bikarúrslitunum í fótboltanum enda er þetta stærsti leikur tímabilsins hér heima og þetta árið er engin undantekning á því. Í dag klukkan 14 á Laugardalsvelli leiða saman hesta sína leikmenn KA og Keflavíkur. Af því tilefni sló Fréttablaðið á þráðinn til bæjarstjóranna í Reykjanesbæ og á Akureyri, þeirra Árna Sigfússonar og Kristjáns Þórs Júlíussonar, og heyrði í þeim hljóðið. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, sagði góða stemningu ríkja í bænum fyrir leikinn. "Það er hörkufín stemning hér og úr því að körfuboltalið Keflvíkinga náði að verða Norðurlandameistari hljóta nú menn að stefna á bikarmeistaratitil í knattspyrnu hér heima, svo við reynum að egna þeim saman," segir Árni og bætir við: "Reykjanesbær er meira en bara körfuboltabær og verður að bera nafn með rentu sem íþróttabær, og hann gerir það reyndar." Aðspurður segir Árni að svona stórleikir séu bæði skemmtilegir og ekki síður mikilvægir fyrir bæjarfélögin. "Það er ekkert nema jákvætt sem kemur út úr svona leikjum, menn þjappa sér saman, hvort sem er inni á vellinum eða uppi í áhorfendastúkum og reyna allir sem einn að gera þetta að skemmtilegri upplifun. Það er líka skemmtilegt að þarna skuli takast á félög utan höfuðborgarsvæðisins. Það er mikilvægt og skilar sér vel fyrir bæjarfélögin að komast í þennan leik, bæði félagslega og vegna heiðursins en einnig vegna möguleikans á sæti í Evrópukeppninni - þannig að það er til mikils að vinna á ýmsan hátt." Árni er sannfærður um að sínir menn komi vel stemmdir til leiks og nái takmarkinu - komi með bikarinn suður eftir. "Það er kominn tími á okkur, það eru sjö ár frá síðasta bikartitli og það er allt of langur tími. Við klárum þetta í spennandi og skemmtilegum leik og ég vona að mörkin verði sem flest - bara á meðan við skorum fleiri," sagði Árni Sigfússon, léttur í lund. "Það er að sjálfsögðu gott hljóð í mér á þessum drottins degi," sagði Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og bætti við: "Það er tilhlökkun og stemning í okkur norðanmönnum og á dagskrá er að fá bikarinn í fyrsta sinn hingað norður yfir heiðar. Svona leikir eru stór liður í því að halda uppi góðum móral og keyra fólk áfram - þetta er hluti af bæjarsálinni, að berjast í íþróttum, það er bara þannig." Kristján nefnir að það sé alltaf dálítið sérstakt og skemmtilegt þegar lið utan höfuðborgarsvæðisins mætast í svona úrslitaleik. "Það hlýtur að gefa mönnum dálítið spark í afturendann, að vilja sýna og sanna að liðin utan höfuðborgarsvæðisins geti þetta alveg. KA hefur náð að verða Íslandsmeistari en ekki bikarmeistari og það er svo löngu kominn tími til. Það er í raun og veru óskiljanlegt að það skuli ekki enn hafa gerst," segir Kristján og hlær dátt." Hann er á því að KA-menn eigi bikarinn fyllilega skilinn eftir rýra uppskeru í sumar. "Það væri frábært að vinna sigur og fá uppreisn æru eftir fallið í 1. deild og ég er reyndar býsna vongóður um að það takist. Liðið sýndi það í sigurleiknum gegn FH í undanúrslitunum að það getur lagt hvaða lið sem er að velli. Þorvaldur þjálfari sagði eftir FH-leikinn að liðið væri ekki búið að toppa enn. Við skulum bara vona að hann hafi haft rétt fyrir sér og ég hef reyndar engu trú á öðru," sagði Kristján Þór Júlíusson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Zlatan sendi sænsku táningsstelpunni skilaboð eftir vítaklúðrið Fótbolti Dómarinn í úrslitaleik HM með kartöflu um hálsinn eftir að hann hitti Trump Fótbolti „Svo ákveð ég alltaf að drulla mér ennþá lengra í burtu“ Fótbolti Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik-Vestri 1-0 | Blikar náðu Víkingum á toppnum Íslenski boltinn Hvítskeggjaði kylfusveinninn stal senunni á Opna breska Golf Heimsmeistararnir stóðu heiðursvörð fyrir svissneska liðið í leikslok Fótbolti Vill eyða draugasögunni um að Grindavík spili ekki í Grindavík í vetur Körfubolti Í beinni: KA - ÍA | Botnliðin takast á Íslenski boltinn Slapp snemma úr sjö ára banni og samdi strax við Skagamenn Körfubolti Fleiri fréttir „Sóknarsinnaðasta liði í sögu íslenskrar knattspyrnu“ „Við náttúrulega þurfum að skora mörk“ Ten Hag byrjar ekki vel hjá Leverkusen: „Mér er skítsama“ Uppgjörið: Breiðablik-Vestri 1-0 | Blikar náðu Víkingum á toppnum Í beinni: KA - ÍA | Botnliðin takast á Daníel Tristan lagði upp mark í sigri Malmö Brotist inn hjá Platini og verðlaunin hurfu Lærisveinar Freys töpuðu fyrir KFUM liðinu Heimsmeistararnir stóðu heiðursvörð fyrir svissneska liðið í leikslok Rashford nálgast Barcelona Hera í úrslit á Evrópumótinu „Svo ákveð ég alltaf að drulla mér ennþá lengra í burtu“ Strákarnir tryggðu sér úrslitaleik um sæti í A-deild EM með stórsigri Hvítskeggjaði kylfusveinninn stal senunni á Opna breska Vill eyða draugasögunni um að Grindavík spili ekki í Grindavík í vetur Slapp snemma úr sjö ára banni og samdi strax við Skagamenn Kátína í Kenía og kvalir í Köben Zlatan sendi sænsku táningsstelpunni skilaboð eftir vítaklúðrið Dómarinn í úrslitaleik HM með kartöflu um hálsinn eftir að hann hitti Trump Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Ofurstjarnan Caitlin Clark ekki með í Stjörnuleiknum Dagskráin í dag: Opna og sex stiga leikur á Akureyri Hrókeringar í markmannsmálum Man City Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Spánverjar örugglega áfram þrátt fyrir vítaklúður Töpuðu stórt áður en þeir mæta Blikum í Meistaradeildinni Andri Fannar á leið frá Bologna enn á ný Vélmennið leiðir Opna breska Hófu titilvörnina á naumum sigri Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Sjá meira