Taka fingraför og ljósmynd 30. september 2004 00:01
Fingraför allra Íslendinga sem koma til Bandaríkjanna verða framvegis skönnuð inn í gagnabanka og einnig verður tekin af þeim ljósmynd. Þetta verður gert vegna hryðjuverkavarna. Framvegis verða allir íslenskir ferðamenn stöðvaðir við vegabréfseftirlit í Bandaríkjunum, tekin af þeim andlitsmynd og fingraför af vísifingrum. Allt verður þetta vistað í gagnabanka sem nota á í baráttunni gegn hryðjuverkum. Þessi háttur hefur verið hafður á um íbúa annarra landa um hríð en enn sem komið er hefur enginn hryðjuverkamaður fundist heldur einungis nokkrir smákrimmar. Gagnagrunnurinn dugir enda einungis til að bera kennsla á þekkta hryðjuverkamenn. Mannréttindafrömuðir segja þetta klárt brot á persónuvernd og óskilvirka baráttuaðgerð en því hefur verið haldið fram að svo miklum upplýsingum sé safnað að engin leið sé að vinna úr þeim. Frá og með 26. október næstkomandi þurfa Íslendingar að auki að framvísa nýjustu tegund vegabréfa til að komast án áritunar inn í Bandaríkin. Einungis vegabréf með tölvurönd verða tekin gild. Ári síðar, í október 2005, verður svo hert enn á reglunum og krafist lífkenna, þ.e.a.s. einkum upplýsinga um höfuðlag. Íslensk vegabréf sem gefin eru út eftir 1999 duga sem stendur en dómsmálaráðherra hefur skipað starfshóp til að undirbúa ný vegabréf með lífkennum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira