Innlent

Árni skipaður á ný

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra skipaði í gær dr. Árna Einarsson líffræðing til þess að gegna áfram stöðu forstöðumanns Náttúrurannsóknastöðvarinnar til næstu fimm ára. Árni hefur starfað sem forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar frá árinu 1996.  Umsækjendur um stöðuna auk Árna voru Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur og dr. Ragnhildur Sigurðardóttir vistkerfavistfræðingur. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir að þann 1. október nk. taki gildi ný lög um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu og um leið falli úr gildi lög frá árinu 1974 um svæðið. Samkvæmt nýju lögunum njóta Laxá, Mývatn og nálæg votlendissvæði sérstakrar verndar en gert er ráð fyrir að önnur svæði í Skútustaðahreppi sem hafa hátt verndargildi verði friðlýst á grundvelli náttúruverndarlaga. Í lögunum eru einnig nýmæli um vernd vatnasviðs Laxár og Mývatns og um gerð verndaráætlunar fyrir Laxá og Skútustaðahrepp. Önnur nýmæli í lögunum eru að stjórn Náttúrurannsóknastöðvarinnar er lögð niður og stjórn stofnunarinnar alfarið færð í hendur forstöðumanns beint undir yfirstjórn ráðherra. Samkvæmt lögunum skal umhverfisráðherra skipa sérstakt fagráð, forstöðumanni til ráðgjafar um vísindastarf stofnunarinnar, rannsóknarstefnu og fagleg tengsl við aðrar stofnanir sem stunda rannsóknir á vatnasviði Mývatns og Laxár. Mun það verða gert fljótlega segir í tilkynningu umhverfisráðuneytisins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×