Innlent

Samson herðir tökin í Straumi

Samson, félag Björgólfsfeðga og Magnúsar Þorsteinssonar, treysti tök sín í fjármálalífinu þegar Landsbankinn og Burðarás eignuðust fjórðungs hlut í Straumi fjárfestingarbanka. Samhliða varð Straumur stærsti einstaki hluthafinn í Íslandsbanka. Eign Samsonar í Straumi telst til stærri tíðinda í íslensku viðskiptalífi. Björgólfur Thor Björgólfsson segir ekki uppi áætlanir um sameiningu eða breytingar á fjárfestingarstefnu félaganna. Þórður Már Jóhannesson, forstjóri Straums, segir fjárfestingu í Íslandsbanka góðan kost og auka möguleika Straums til virkrar þátttöku í hagræðingu á fjármálamarkaði. "Töluverð hagræðing hefur átt sér stað á íslenskum fjármagnsmarkaði og teljum við henni ekki lokið." Sjá frekari umfjöllun hér.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×