Synir og tengdasynir hólpnir 29. september 2004 00:01
Megn óánægja er meðal slökkviliðsmanna með hvernig staðið hefur verið að uppsögnum hjá Slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli. Heimildir blaðsins herma að átta yfirmenn hjá slökkviliðinu hafi lagt til nöfn þeirra sem segja ætti upp störfum. Að minnsta kosti fjórir þessara yfirmanna eiga annað hvort son eða tengdason innan slökkviliðsins sem ekki var í hópi þeirra sem sagt var upp. Síðustu tvo mánuði hafa 14 slökkviliðsmenn þegar fengið uppsagnarbréf og þremur til viðbótar var sagt upp núna um mánaðamótin. Með því hefur 17 slökkviliðsmönnum af hundrað sem á vellinum vinna verið sagt upp. Sigurður Arason, aðstoðarslökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli, segist ekki mega tjá sig, hvorki um yfirstaðnar né fyrirhugaðar uppsagnir hjá slökkviliðinu. Hann neitar því þó alfarið að fjölskyldutengsl yfirmanna ráði því hverjir halda vinnunni hjá slökkviliðinu á vellinum. "Það kemur þessu ekkert við. Við fáum bara beiðnir um að fækka svo og svo mörgum í ákveðnu liði hér hjá okkur og tengist þessu ekkert. Hér er ekkert verið að tala um nein fjölskyldutengsl," segir Sigurður og neitar að tjá sig um hvaða þættir ráði því hvaða slökkviliðsmenn séu látnir fara. Sjálfur tengist Sigurður fjölskylduböndum slökkviliðsmanni sem ekki var látinn fara. "Það kemur þessu máli ekkert við. Sá einstaklingur er að fara frá liðinu," segir Sigurður. "Ákvörðun um uppsagnir einstakra starfsmanna flotaflugstöðvar varnarliðsins ræðst af mati yfirmanns hennar miðað við að lágmarksröskun verði á rekstri eftir breytingu," segir í yfirlýsingu sem Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Varnarliðsins sendi frá sér eftir að hafa verið spurður til hvaða hluta væri horft þegar tekin væri ákvörðun um niðurskurð í starfsliðinu. Ekki fylgdi með svarinu hvort talið væri að mikil röskun á rekstrinum gæti orðið ef sonum eða tengdasonum yfirmanna slökkviliðsins yrði sagt upp störfum. Fram hefur komið að uppsagnir starfsmanna Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli eru ekki í samræmi við starfsaldur þeirra og hefur Vernharð Guðnason, formaður Landssambands sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna lýst yfir áhyggjum af ástandinu á Keflavíkurflugvelli.
Fréttir Innlent Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Sjá meira