Innlent

Opna skrifstofu í Færeyjum

Samskip hafa opnað nýja skrifstofu í Þórshöfn í Færeyjum. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að í kjölfar þessa verði siglingaáætlunin endurskoðuð en skipið hefur siglt vikulega þangað síðan í sumar. Nú eru starfsmenn Samskipa í Færeyjum fjórir en í gær var gengið frá ráðningu nýs yfirmanns Samskipa í Færeyjum. Hann heitir Jóel úndir Lætinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×