Innlent

Reykingar bannaðar á matsölustöðum

Reykingabann á veitingahúsum kann að verða samþykkt á Alþingi í vetur. Drög að frumvarpi til tóbaksvarnalaga, þar sem gert er ráð fyrir banninu, er tilbúið í heilbrigðisráðuneytinu og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hyggst leggja frumvarpið fram í haust. Talið er að í frumvarpinu sé eingöngu átt við matsölustaði en ráðherrann hefur sjálfur lýst yfir vilja til að ganga skrefinu lengra og banna einnig reykingar á krám og skemmtistöðum. Talið er að afstaða þingmanna til frumvarpsins falli ekki eftir flokkslínum og hart verði tekist á um það í haust. Kristbjörg Kristinsdóttir, eigandi Kaffibrennslunnar, sem er veitingastaður í miðborg Reykjavíkur, líst illa á það sem hún hefur heyrt af frumvarpsdrögunum. ,,Það ætti að duga að skilja á milli reyk- og reyklausra svæða, eins og gert er í dag. Svo eru nokkur veitingahús í miðbænum sem eru reyklaus. Ég skil ekki af hverju þarf alltaf að setja alla í sömu körfu? Fólk getur sjálft valið þarna á milli eins og staðan er í dag."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×