Við höldum ótrauð áfram 28. september 2004 00:01
Fimmtán starfsmenn þeirra þriggja fyrirtækja sem urðu eldinum að bráð í Votmúla á Blönduósi missa vinnuna að minnsta kosti tímabundið. Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæjarstjóri á Blönduósi, segir að bruninn sé mjög mikið áfall fyrir bæjarfélagið. "Við ætlum samt að halda ótrauð áfram," segir Jóna Fanney. "Við ætlum ekkert að leggjast í kör. Þegar fólk er búið að jafna sig og búið að fara yfir tryggingamál og annað slíkt verður allt sett í gang aftur. Ég heyri það á forsvarsmönnum fyrirtækjanna." Jóna Fanney segir að bæjarstjórnin hitti nokkra þingmenn í dag og fari yfir stöðuna með þeim. Hún segir alveg ljóst að allt verði gert til að hjálpa því fólki sem eigi um sárt að binda vegna brunans. Hún segir að bruninn í Votmúla sé langstærsti bruninn í manna minnum á Blönduósi. "Það var hringt í mig korter yfir fjögur í nótt og ég kom strax. Ástandið var skelfilegt og það var erfitt að horfa á þetta án þess að geta hjálpað nokkuð til. Strákarnir í slökkviliðinu unnu mjög fagmannlega og í mínum augum eru þeir sannkallaðar hetjur fyrir að hafa stoppað eldinn við eldvarnarvegginn. Ef það hefði ekki tekist hefði nýrisin ullarþvottastöð brunnið til kaldra kola."
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira