Munað getur kílói á hvern dilk 28. september 2004 00:01
Sökum hita og þurrka hefur fé skilað sér rýrara af fjalli núna í haust en áður hefur verið. Að sögn Özurar Lárussonar, framkvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjárbænda, er ástandið misslæmt eftir landsvæðum. "Verst er ástandið þar sem mestu þurrkarnir hafa verið, á Norðausturlandi og þar í kring. Þar sjá menn áberandi mun á fé þegar það kemur af fjalli," segir hann og telur einsýnt að áhrifin kunni að verða einhver á afkomu bænda á þessum svæðum. "Menn eru jafnvel að tala um að muni kannski einu kílói á meðalinnleggi á hvern dilk, þannig að það hefur töluvert að segja." Nákvæmar tölur um hversu miklu munar á fé milli ára segir Özur að ættu að liggja fyrir í lok sláturtíðar. Jóhann Jónsson, sauðfjárbóndi í Mjóanesi í Þingvallasveit, taldi ekki að mikilla áhrifa myndi gæta hjá sér þótt fé væri eitthvað rýrara af fjalli í ár en verið hefur. "Afurðirnar eru aðeins minni, en það er svo margt annað sem spilar inn í," sagði hann og nefndi hluti á borð við gæðastýringu í sauðfjárrækt og flokkun í sláturhúsum. Hann sagði nokkuð um að eldri sauðfjárbændur hættu rekstri vegna aukinna kvaða um gæðastýringu. "Ef menn standa sig ekki í að skila inn skýrslum þá eru beingreiðslur til þeirra skertar um ein 22 prósent." Özur segir ekki komna reynslu á það enn hvort sauðfjárbændur skiluðu almennt inn gæðaskýrslum, í ár væri fyrst að koma reynsla á nýtt kerfi. "Samkvæmt nýjum sauðfjársamningi sem samþykktur var af meirihluta bænda verða þeir af 22 prósentum beingreiðslna sem uppfylla ekki kröfur gæðastýringar." Hann segir um 1.550 sauðfjárbændur hafa skráð sig inn í gæðastýringu, en inni í þeim tölum væri bróðurparturinn af þeim bændum sem væru með hrein sauðfjárbú. "Síðan á bara eftir að koma í ljós hverjir standa sig og hverjir standa sig ekki," bætti hann við og sló á að um 200 hrein sauðfjárbú stæðu enn utan gæðastýringarinnar. "En það var svo sem heldur ekki við því að búast að allir kæmu inn í einu."
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira