Innlent

Krafa um að framkvæmdir stoppi

Nágrannar gamla Eimskipafélagshússins hafa krafist þess að framkvæmdir verði stöðvaðar við fyrirhugað hótel í húsinu. Hvorki liggur fyrir byggingaleyfi né bráðabirgðaleyfi til framkvæmdanna. Magnús Sædal byggingafulltrúi skrifaði verkfræðistofunni VSÓ ráðgjöf bréf í lok ágúst þar sem kom fram að allar framkvæmdir við hótelið væri óheimilar þar til byggingaleyfi lægi fyrir. Í kjölfarið lýsti talsmaður verkfræðistofunnar því yfir að reynt yrði að fá bráðabirgðaleyfi til framkvæmdanna. Byrjað er að bóka inn á hótelið sem á að opna í mars. Ætlunin var að hefja framkvæmdir 10. september, en leyfi til framkvæmdarinnar hefur ekki fengist, frá byggingafulltrúa. Húsafriðunarnefnd hefur hinsvegar gefið leyfi til þess að klæða megi friðaðar innréttingar af. Framkvæmdaleyfi skortir hinsvegar. Nágrannar hafa gert athugasemdir vegna fyrirhugaðrar lóðasameiningar og hafa nú fengið því framgent að farið verður út í grenndarkynningu sem tekur að lágmarki fjórar vikur. Þá hafa verið gerðar athugasemdir vegna fjölda glugga á eldvarnarvegg sem snýr að nágrönnum við Hafnarstræti ellefu. Eigendur breyttu hinsvegar teikningum til að liðka til fyrir afgreiðslu málsins og tóku í burtu þau atriði sem líkleg voru til að valda mestum deilum. Þessar breytingar fækka herbergjum hótelsins til muna, í stað 70 herbergja verða þau í mesta lagi 60. Þrátt fyrir það var auglýst eftir hótelstjóra nokkrum dögum eftir að sótt var um byggingarleyfi á grundvelli nýrra teikninga, á nýtt 70 herbergja hótel. Eigendur hússins við Hafnarstræti ellefu segja að hafnar séu framkvæmdir við hótelið. Lögfræðingur þeirra hefur krafist þess að framkvæmdir verði stöðvaðar tafarlaust, þar sem þær séu í heimildarleysi. Verði því ekki sinnt verður íhugað að fara fram á lögbann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×