Tjaldferðalög að leggjast af 28. september 2004 00:01
Íslenskum gestum á tjaldstæði hefur fækkað um 60 til 70 prósent í Þjóðgarðinum á Þingvöllum frá árunum 1990 og 1991. Þá var algengt að 9 til 10 þúsund Íslendingar gistu á ári hverju og um 2 þúsund útlendingar að auki. Nú þykir gott ef íslenskir næturgestir ná fjórum þúsundum yfir sumarið. Fjöldi erlendra gesta stendur í stað að mestu. Sambærilegar tölur frá Þjóðgarðinum í Skaftafelli sýna að þar er fækkun íslenskra næturgesta sambærileg og á Þingvöllum, eða nálægt 50 prósentum frá 1990 til 2003. Í fyrra gistu einungis 3.625 Íslendingar í þjóðgarðinum, en í sumar nær 5 þúsund. Í Skaftafelli hafa að hafa erlendir næturgestir að jafnaði verið um og yfir 10 þúsund á ári frá 1995. Guðrún S. Kristinsdóttir, yfirlandvörður á Þingvöllum, segir að síðan 1990 hafi aukist mjög framboð á gistingu á tjaldstæðum víðar á Suðurlandi og Þingvellir kunni af þeim sökum að gjalda nálægðarinnar við höfuðborgina. "Fólk fer orðið miklu meira og lengra og dreifist líka á stærra svæði á tjaldstæði sem ekki voru til hér áður fyrr," segir hún. Sigurður Oddsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, segir gestum hafa fækkað nokkuð fyrir allmörgum árum þegar lokað var fyrir viðveru hjólhýsa. Þá hafa síðustu ár verið gerðar breytingar á tjaldsvæðum við sjálft Þingvallavatn, þar sem nú er einungis heimilt að tjalda á einum stað, auk þess sem tjaldvögnum hefur verið úthýst. Sigurður bendir þó á að aðstaða fyrir gesti hafi verið bætt mjög á Þingvöllum. "Við erum komin með nýjar snyrtingar og sturtur bæði á Nyrðri- og Syðri-Leirum og svo þurrkaðstöðu. Næsta sumar setjum við svo upp sambærilega nýja aðstöðu í Vatnskoti." Árni Bragason, forstöðumaður umhverfisverndarsviðs hjá Náttúrufræðistofnun, segir vísbendingar um að "fellihýsamenningin" sé að snúa við þróuninni varðandi gistingu Íslendinga á tjaldsvæðum. Hann bendir einnig á aukið framboð gistingar og telur að eftir því sem fólk hafi meira á milli handanna sæki það frekar í gistingu þar sem þjónusta er meiri, svo sem í bændagistingu eða á hótel landsins. "Annar sjáum við líka hvað veðurfarið ræður orðið miklu. Íslendingar keyra hiklaust landshorna á milli eftir góðu veðri," segir hann. Fjöldi næturgesta í Þjóðgarðinum á Þingvöllum 1990 til 2004: Ár Gestir alls Íslendingar Útlendingar 1990 10.920 8.728 2.192 1991 11.719 9.683 2.036 1992 9.531 7.211 2.320 1993 9.036 7.327 1.709 1994 8.217 6.013 2.204 1995 4.597 2.855 1.742 1996 5.407 3.378 2.029 1997 5.140 3.292 1.848 1998 6.701 5.132 1.569 1999 6.325 4.603 1.722 2000 5.694 3.704 1.990 2001 5.441 3.427 2.014 2002 4.932 2.944 1.988 2003 7.198 4.589 2.609 2004 4.578 2.662 1.916 Heimild: Þjóðgarðurinn á Þingvöllum og Hagstofa Íslands.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira