Innlent

Íþróttir kunna að verða undir

Eggert Magnússyni, formanni Knattspyrnusambands Íslands, finnst ástæðulaust að sameina íþróttamál og menningarmál í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar. Tillögur um það eru til umfjöllunar hjá borgarfulltrúum Reykjavíkurlistans og innan stjórnkerfisnefndar borgarinnar. Eggert segir að Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur vinni sitt starf vel og íþróttir verði mikilvægari eftir því sem dagleg hreyfing fólks minnkar. "Ég óttast að til verði svo stórt bákn að íþróttir týnist þar inni eða verði undir í baráttu við menninguna."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×