Ný stólalyfta í Bláfjöllum 27. september 2004 00:01
Verið er að reisa nýja 250 milljóna króna skíðalyftu í Bláfjöllum, þrátt fyrir mesta snjóleysi í manna minnum á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins undanfarna vetur. En lyftan verður einnig notuð á sumrin, til að flytja ferðamenn og reiðhjólin þeirra upp á fjallstindana. Skíðasvæðið er í eigu tólf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem munu punga út heilum 250 milljónum fyrir hana. Grétar Hallur Þórisson, forstöðumaður skíðasvæða höfuðborgarsvæðissins segir þetta stærsta skíðamannvirki sem reist hafi verið á landinu til þessa. Lyftan mun flytja 2500 manns á klukkustund, meira en tvöfalt fleiri en sú gamla. Biðraðir ættu því að vera úr sögunni, að sögn Grétars, en gamla lyftan verður líklega áfram í notkun um stund. Og í stað stóla er hægt að setja upp litla lokaða klefa á um helming nýju lyftunnar. Hann segir eina af hugmyndunum vera að nota lyftuna fyrir ferðamenn á sumrin. Til dæmis sé hægt að nota lyfturnar í hellaferðir og eins verði hægt að nota lyftuna til þess að flytja reiðhjól, þar sem hluti stólanna verði með þar til gerðar festingar. Síðustu tvo vetur hefur aðeins verið opið í 25 til 28 daga í Bláfjöllum, en árin þar á undan voru opnunardagarnir allt að 70. Grétar segir að það sé einmitt mikilvægt að þá fáu daga sem sé opið, þurfi fólk ekki að dúsa of lengi í biðröðum. Rétt innan við 40 þúsund manns hafi þó komið þá fáu daga sem opið var í fyrra. Eins séu þetta eðlilegar endurbætur, þar sem núverandi stólalyfta sé frá árinu 1978.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Sjá meira