Samfylking vill úttekt 27. september 2004 00:01
Margrét Frímannsdóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar telur furðu sæta að ríkisfyrirtækið Síminn kaupi hlut í fjölmiðlafyrirtæki þegar talað sé um nauðsynlegan niðurskurð hjá Ríkisútvarpinu. Þingflokkurinn hefur farið fram á að gerð verði opinber úttekt á Landssímanum og dótturfélögum hans. Margrét hefur farið fram á það við forsætisnefnd Alþingis fyrir hönd þingflokksins að hún feli Ríkisendurskoðun að gera úttekt á Símanum og dóttur og hlutdeildarfélögum hans. Til grundvallar verði lagðar nokkrar spurningar sem lúta meðal annars að kaupum á fjórðungshlut í Skjá einum á dögunum, hvaða arðsemiskröfur lágu þar að baki og hvernig fjármögnun kaupanna var háttað. Þá er spurt um fjárfestingar í Breiðbandinu, í dóttur- og hlutdeildarfélögum og svo um rekstrarafkomu og skattgreiðslur. Margrét segir nauðsynlegt að fara þessa leið þar sem illa hafi gengið að fá svör við spurningum sem lagðar hafa verið fram á þingi um þetta fyrirtæki, sem að langmestum hluta sé í eigu ríkisins. Hún segir almenning eiga fyrirtækið og það sé ómerkilegur málflutningur að spyrða Samfylkinguna við Norðurljós vegna þessa. Það sé óeðlilegt að fyrirtæki í ríkiseign kaupi hlut í fjölmiðlafyrirtæki á sama tíma og verið sé að tala um að það þurfi jafnvel að skipta upp ríkisútvarpinu og draga úr umsvifum ríkisins á þessu sviði. Forsendurnar sem liggi að baki kaupunum séu ekki ljósar þingmönnum né öðrum og því sé eðlilegt að farið sé fram á þessar upplýsingar.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira