Innlent

Tjaldanes til sölu

Tjaldanes, heimili þroskaheftra drengja í Mosfellsdal, er til sölu, Starfsemi lagðist þar af í maí síðastliðnum, en frá því á síðasta ári hefur verið unnið að því að koma heimilismönnum fyrir annars staðar. Þeir búa ýmist einir eða fleiri í þjónustuíbúðum víðs vegar í Mosfellsbæ, þar sem veitt er þjónusta allan sólarhringinn. Samkvæmt upplýsingum frá Svæðisstjórn fatlaðra á Reykjanesi hefur þetta mælst vel fyrir og almenn ánægja meðal íbúanna sjálfra. Þá standa yfir samningaviðræður við Ásgarð, um að taka yfir vinnustofuna sem starfrækt var að Tjaldanesi og flyst hún þá væntanlega í Álafosshverfið í Mosfellsbæ, þar sem Ásgarður er með aðstöðu. Tekjur af sölunni munu renna í Framkvæmdasjóð fatlaðra. Samkvæmt auglýsingu frá Ríkiskaupum, sem annast söluna er brunabótamat húsanna tæpar 119 milljónir króna, en fasteigna- og lóðamat tæpar 143 milljónir króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×