Innlent

Kennarar fá stuðning og átalningu

Í yfirlýsingu frá Kennarafélagi Vesturlands er fullum stuðningi við samninganefnd Kennarasambands Íslands lýst yfir og hún hvött til að kvika hvergi frá settum kröfum. Og stjórn Heimdallar átelur þá afstöðu KÍ að veita ekki undanþágur til kennara sem koma að kennslu og umönnun fatlaðra barna. Í yfirlýsingu frá stjórn félagsins segir að í röðum ungra sjálfstæðismanna séu uppi háværar raddir um að brjóta þurfi upp einokun hins opinbera á grunnskólarekstri og færa í hendur einkaaðila.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×