Innlent

Viðræður fram í næsta mánuð

Niðurstöðu úr sameiningarviðræðum Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík er ekki að vænta fyrr en undir miðjan næsta mánuð, að sögn Stefaníu Katrínar Karlsdóttur, rektors Tækniháskólans. Þegar viðræður hófust var gert ráð fyrir að niðurstaða lægi fyrir núna í septemberlok. "Viðræðurnar ganga vel, en það er ekki búið að taka neina ákvörðun," sagði Stefanía Katrín og bjóst ekki við ákvörðun fyrr en um eða upp úr 10. október. "Það koma margir að málinu og ef til vill full mikil bjartsýni að ætla að klára þetta fyrir lok september," sagði hún. Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu, stýrir viðræðunum fyrir hönd ríkisins. Að viðræðunum koma Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Verslunarráð Íslands sem væntanlegir bakhjarlar sameinaðs háskóla. Komi þeir sér saman taka við viðræður um aðkomu ríkisins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×