Innlent

Íhuga að skipuleggja starfsemi

Hvorugur deilenda í Kennaraverkfallinu hafði nú undir hádegið óskað efitir því við Ríkissáttasemjara að fyrirhuguðum samningafundi hjá Ríkissáttasemjara á fimmtudag yrði flýtt. Önnur vika kennaraverkfallsins er hafin og eru horfur vægast sagt ekki góðar. Næsti samningafundur hefur verið boðaður á fimmtudagsmorgun, en sáttsemjari segir að á meðan svo mikið beri í millli deilenda sem raun ber vitni, sé tilgangslaust fyrir hann að leggja fram miðlunartillögu. Það sé heldur ekki raunhæft að láta samningamenn þrauka á maraþonfundum hjá ríkissáttaemjara, því þá sé hætt við að þeir einangrist frá umbjóðendum sínum, sem ef til vill hafa eitthvað nýtt til málanna að leggja. Sveitarstjórnarmenn víða um land íhuga að skipuleggja einhversskonar starfssemi fyrir börn í skólunum á meðan á verkfalli stendur, jafnvel þótt þeir óttist að það geti hleypt illu blóði í viðræðurnar til að byrja með að sögn Ómars Más Jónssonrar sveitarstjóra á Súðavík. Hann segir stöðuna þannig að verið sé að skoða málið og fljótlega verði metið hvort út í þetta verði farið og þá muni lengd verkfallsins hafa áhrif sitt að segja. Hann segir að verið sé að skoða hluta af skólahúsinu til þess að nota undir starfsemina. Lagalega séð séu skipar skoðanir á þessu, en þeir sem Ómar hafi rætt við hafi sagt sér að skólarýmið væri alfarið á ábyrgð eigenda, sem ráði hvernig þeir nýti rýmið. Hann segir að fundað verði fljótlega og fylgst verði áfram með þróun málsins, en það sé vilji til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×