Segja átti öllum starfsmönnum upp 27. september 2004 00:01
Til stóð að segja öllum starfsmönnum Norðurljósa upp störfum á vormánuðum hefði fyrsta fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar orðið óbreytt að lögum. Frá þessu sagði í kvöldfréttum ríkisútvarpsins 30. apríl. Með því að kallað er eftir leiðréttingu og afsökunarbeiðni í fjölmiðlaumfjöllun í Viðskiptablaðinu, þar sem ekki hafi komið til hópuppsagna hjá Norðurljósum, upplýsir Sigurður G. Guðjónsson, útvarpsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins, að hann hafi verið heimildamaður Arnars Páls Haukssonar, fréttamanns, og að fréttin hafi verið rétt. Hópuppsagnir hafi verið ræddar á fundi með trúnaðarmönnum starfsmanna fyrr um daginn og að til hafi staðið að hrinda þeim í framkvæmd yrði frumvarpið samþykkt á Alþingi. Í yfirlýsingu frá Sigurði G. segir að vegna breytinga sem gerðar voru á frumvarpinu hafi ekki þurft að grípa til hópuppsagna, þegar allt kom til alls. Í fréttum Stöðvar 2 sama kvöld sagði að ekki hefði verið tekin nein formleg ákvörðun um uppsagnir starfsmanna hjá Norðurljósum yrði frumvarp ríkisstjórnarinnar um eignarhald á fjölmiðlum að lögum. Hins vegar mundi lagasetning hafa veruleg áhrif á rekstrargrundvöll félagsins og hefði trúnaðarmönnum verið gerð grein fyrir því á fundi að til hópuppsagna gæti komið. Yfirlýsing Sigurðar G. Guðjónssonar:Heimildarmaður gefur sig fram.Ólafur Teitur Guðnason blaðamaður fjallar reglulega um fjölmiðla í Viðskiptablaðinu. Í pistli sem birtist í blaðinu 24. september undir fyrirsögninni Dellu-Dan og fleiri góðir víkur Ólafur Teitur að frétt sem fréttastofa Ríkisútvarpsins birti á vordögum í kjölfar þess að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafði lagt fram fyrstu útgáfu hins svokallaða fjölmiðlafrumvarps. Hefði frumvarp orðið að lögum, eins og vilji forsætisráðherra, ráðherra og meirihluta stjórnarþingmanna stóð til, lá fyrir að skipta yrði Norðurljósum upp og finna í það minnsta dótturfélögum þess Íslenska útvarpsfélaginu og Frétt að einhverju leyti nýja eigendur.Föstudaginn 30. apríl var haldinn fundur með trúnaðarmönnum starfsmanna Íslenska útvarpsfélagsins, Skífunnar og Fréttar og þeim gerð grein fyrir því að ef frumvarpið yrði að lögum myndi það þýða hópuppsagnir hjá viðkomandi félögum.Fundurinn með trúnaðarmönnum spurðist út. Arnar Páll fréttamaður Ríkisútvarpsins hringdi í mig skömmu fyrir kvöldfréttir þennan sama dag. Ég staðfesti það við hann að hópuppsagnir hefðu verið ræddar á fundinum við trúnaðarmenn og að þær myndu koma til framkvæmda yrði frumvarpið að lögum.Eins og Ólafur Teitur Guðnason veit mæltist frumvarp forsætisráðherra afar illa fyrir í samfélaginu og á Alþingi. Forsætisráðherra var knúinn til þess að gera fjölmargar breytingar á fjölmiðlafrumvarpinu sem var í andstöðu við nánast öll mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar. Vegna þeirra breytinga sem gerðar voru þurfti ekki að grípa til hópuppsagna.Frétt Arnars Páls Haukssonar um hópuppsagnir hjá dótturfélögum Norðurljósa var rétt og byggð á traustum heimildum.Reykjavík 27. september 2004.Sigurður G. Guðjónsson útvarpsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins ehf. og framkvæmdastjóri Norðurljósa hf.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira