Innlent

Leikur veldur nærri stórtjóni

Minnstu munaði að leikur tveggja ellefu ára stráka að eldi austur í Hveragerði um níuleitið í gærkvöldi ylli umtalsverðu tjóni. Þeir kveiktu í ruslagámi, sem stóð upp við áhaldahús bæjarins og náði eldurin að læsa sig í tréklæðningu á húsinu, en vegna þess hversu fljótt eldsilns varð vart, var strax kallað á slökkvilið, sem náði að slökkva eldinn í tæka tíð áður en hann náði að breiða sig um húsið. Drengirnir náðust og var farið yfir málið með foreldrum þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×