KA sló FH út 13. október 2005 14:41
KA-menn gerðu það sem fæstir áttu von á að þeir gæti - slógu nýkrýnda Íslandsmeistara FH út úr bikarnum í gærdag þegar liðin mættust á Laugardalsvelli í undanúrslitunum. Þar með hefndu þeir ófaranna frá því um síðustu helgi en þá sigruðu FH-ingar fyrir norðan, tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn og sendu KA-menn um leið beinustu leið niður í 1. deild. KA mætir annað hvort HK eða Keflavík í úrslitaleiknum en þessi lið mætast einmitt klukkan tvö í dag í seinni undanúrslitaleiknum. Leikurinn fór frekar rólega af stað, FH-ingar, eins og við mátti búast, voru mun meira með boltann en þeim gekk erfiðlega að skapa sér einhver færi að ráði. Reyndar fékk Jón Þorgrímur Stefánsson ágætt færi á 9. mínútu en KA-menn björguðu á línu. Á 28. mínútu komst síðan Ásgeir Gunnar Ásgeirsson aleinn innfyrir en skot hans fór framhjá. Aðeins tveimur mínútum síðar átti Heimir Guðjónsson hræðilega sendingu til baka á Tommy Nielsen, Hreinn Hringsson var fljótur að átta sig og hirti boltann, stakk sér innfyrir og skoraði af öryggi. Þetta var verulega þungt högg fyrir FH og sér í lagi Heimi Guðjónsson sem náði sér aldrei á strik eftir þetta og var nánast eins og skugginn af sjálfum sér. Þróunin það sem eftir lifði leiks var sú að FH-ingar sóttu án afláts en KA-menn lágu í skotgröfunum, gráir fyrir járnum, og voru síðan þrælfljótir að bregða sér í skyndisóknirnar um leið og færi gafst. Þar fór fremstur í flokki Dean Martin, bæði skapaði hann talsverða hættu nokkrum sinnum en ekki síður var hann duglegur að vinna tíma og gera FH-inga enn óþolinmóðari en ella. Á 73. mínútu voru FH-ingar ansi nálægt því að jafna, Atli Viðar Björnsson átti þá tvö skot, annað varði Sandor Mátus en hitt var varið á línu. Fjórum mínútum fyrir leikslok fór boltinn svo í þverslá KA-marksins eftir skot Ármanns Smára Björnssonar. Var það síðasta alvöru færi leiksins og KA-menn fögnuðu gríðarlega í leikslok enda sigurinn frábær uppbót fyrir fallið frá því um síðustu helgi. Þeir spila því til úrslita um bikarinn í þriðja sinn, voru ansi nálægt honum árin 1992 og 2001 og hver veit nema þetta takist hjá þeim í þriðju tilraun. Allt KA-liðið lagði sál sína að veði í þessum leik - allir leikmenn börðust eins og ljón og gáfust aldrei upp þrátt fyrir sívaxandi sóknarþunga anstæðinganna. FH-ingar voru hins vegar alveg heillum horfnir í þessum leik. Liðið náði aldrei þeim takti sem verið hefur í því meginpart sumars og spurningin er sú hvers vegna það gerist einmitt í þessum mikilvæga leik. Hvort liðið hafi einfaldlega ekki verið komið niður úr skýjunum eftir sigurinn um síðustu helgi skal ósagt látið en það var eitthvað meira en lítið að í þessum leik. Þótt Heimir Guðjónsson hafi ekki leikið eins og hann á sér og að flensa hafi hrjáð Allan Borgvardt þá á breidd FH-liðsins að vera það góð að þeir geti brugðist við slíku. Það náði liðið hins vegar ekki að gera, hverju svo um er að kenna, og þrátt fyrir ótal sóknarlotur hafði maður það á tilfinningunni allan leiktímann að leikmönnum liðsins væri gjörsamlega fyrirmunað að skora.
Íslenski boltinn Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Fótbolti UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Sport Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Fótbolti Fleiri fréttir Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Dagskráin í dag: Tveir leikir í Bestu deild kvenna og Bestu mörkin Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ „Fengum það sem við verðskulduðum“ „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Aðalsteinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnusemi dugnaður og samvinna skilaði sigrinum“ „Vitum að við getum skorað fullt af mörkum“ Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Óskar Smári eftir sigurinn: „Birna er einn hraðasti leikmaðurinn í hausnum“ Anton Ingi eftir tapið: „Við höfum ekkert efni á því að fara í frí“ Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum „Þetta var mjög kærkomið“ Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Sjá meira