Innlent

Dómurinn gæti haft fordæmisgildi

Dómur í máli danskrar handboltakonu gegn tímaritinu Se og hör kann að hafa fordæmisgildi hér landi. Ritstjórar og blaðamenn danska tímaritsins töpuðu málinu og voru dæmdir til greiðslu sektar fyrir að hafa birt grein um einkalíf konunnar, gegn vilja hennar.  Danskur dómstóll dæmdi ritstjóra og blaðamenn Se og Hör til að greiða sem samsvarar um átta hundruð þúsund íslenskum krónum. Fyrir tveimur árum fjallaði blaðið um ástamál Önju Andersens, sem er þekktasta handboltakona Danmerkur, en hún var þá þjálfari kvennaliðs Slagelse og átti í ástarsambandi við aðra stúlku í liðinu. Anja stefndi blaðinu og vann sigur í málinu en samkvæmt dóminum hafði umfjöllun blaðsins ekkert með íþróttaiðkun kvennana að gera, heldur einkalíf þeirra, og mátti blaðinu vera ljóst að það var gegn vilja beggja. Talið er að dómurinn ytra kunni að hafa fordæmisgildi hér á landi en íslenska Séð og heyrt hefur löngum fjallað um einkalíf fólks með svipuðum hætti og danska blaðið. Ragnar Aðalsteinsson lögmaður, sem fjallað hefur um ýmis mál tengd tjáningarfrelsi einstaklinga, segir augljóst að danski dómurinn taki mið af nýlegum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Karólínu Mónakóprinsessu gegn þýsku tímariti. Þar varð niðurstaðan sú að þegar um opinberar persónur er að ræða, þá megi segja fréttir í tengslum við opinber störf þeirra, en öðru máli gegni þegar komi að birtingu mynda sem varði einkalíf þeirra því fyrir slíkum myndum verði að fá heimild og samþykki viðkomandi. Ragnar telur að með dómi mannréttindadómstóls Evrópu hafi margt skýrst sem áður hafi verið óljóst og danski dómurinn taki augljóslega mið af því.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×