Keflavík stóð sig vel úti 20. september 2004 00:01
Kvennalið Keflavíkur í körfubolta gerði góða ferð til Kaupmannahafnar um helgina þar sem liðið endaði í 2. sæti á æfingamóti og vann alls fjóra af fimm leikjum sínum í ferðinni. Keflavík tapaði fyrir dönsku meisturunum Hörsholm, 42-71, en þetta er eitt allra sterkasta félagslið landsins með þrjá bestu leikmenn Danmerkur. Hinir leikirnir unnust, tveir gegn danska liðinu Sisu og síðan vann Keflavík sænska liðið Lobas. Þá lék liðið að nýju við Hörsholm sem spilaði reyndar þann leik án sinna sterkustu leikmanna. Gefur þetta Keflavíkurstúlkum byr undir báða vængi fyrir komandi tímabil í 1. deild kvenna. Sverrir Þór Sverrisson, er tekinn við þjálfun Keflavíkurliðsins sem vann alla fimm titla í boði í fyrravetur en liðið er nokkuð breytt í vetur. Sverrir Þór var sáttur með mótið í Köben og sagði ferðina spila stóra rullu í undirbúningnum. "Við fengum hörkuleiki" sagði Sverrir. "Það var mjög gaman að fá að keppa við sterk lið frá öðrum löndum. Ég held að þetta skilji helling eftir sig í reynslubankanum hjá stelpunum og sömuleiðis hjá mér" sagði þjálfarinn knái. Sverrir fullyrti að hann hafi auðgað hugmyndaflugið í ferðinni. "Svo kynntist ég liðinu betur og fékk fleiri hugmyndir varðandi liðið. Við spiluðum 5 leiki á fjórum dögum, mikil törn. Árangurinn, fjórir sigrar og eitt tap, er mjög góður að mínu mati". Birna Valgarðsdóttir, fyrirliði Keflavíkur, meiddist stuttu fyrir ferðina og lék aðeins með í lokaleikhlutanum í síðasta leiknum. "Við tókum smá áhættu í þeim leik með því að setja hana inn á í fjórða leikhluta. Það gaf góða raun því hún kom sterk inn og við unnum með þremur stigum". Að sögn Sverris mun liðið taka sér smá hlé meðan á Meistaramóti Norðurlanda stendur en þar etja Keflavíkurmenn kappi. "Eftir tvær vikur eru Meistarar meistaranna og þá fer veturinn í gang fyrir alvöru" sagði Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur.
Íþróttir Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Fótbolti UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Sport Fleiri fréttir PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Dagskráin í dag: Tveir leikir í Bestu deild kvenna og Bestu mörkin Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ „Fengum það sem við verðskulduðum“ „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Aðalsteinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnusemi dugnaður og samvinna skilaði sigrinum“ „Vitum að við getum skorað fullt af mörkum“ Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Óskar Smári eftir sigurinn: „Birna er einn hraðasti leikmaðurinn í hausnum“ Sjá meira