Þjóðsagan um Framara 18. september 2004 00:01
Framarar hafa bjargað sér frá falli úr úrvalsdeildinni í lokaumferðinni síðustu fimm ár og í dag reynir enn og aftur á þjóðsöguna um Safamýrarliðið og hetjudáðir þess í lokadegi Íslandsmótsins. Mótherjarnir í dag eru Keflvíkingar, sem mættu einnig við svipaðar aðstæður á Laugardalsvöllinn fyrir þremur árum en Fram vann þá 5-3 sigur og bjargaði sér frá falli í ótrúlegum átta marka leik. Haustið 1999 voru Framarar í 7. sæti fyrir 18. umferðina, einu stigi á undan fallsætinu, en björguðu sér frá falli með sigri gegn Víkingum sem jafnframt þýddi að nágrannarnir úr Víkingi og Val féllu. Árið eftir sátu Framarar í fallsæti fyrir lokaumferðina á lakari markatölu en Stjörnumenn. Stórtap Stjörnunnar í lokaleiknum þýddi að Fram og Breiðablik nægði jafntefli úr lokaleiknum og leikur liðanna varð að leikleysu þegar liðin biðu eftir lokaflautinu því 1-1 jafntefli dugði báðum til áframhaldandi veru í úrvalsdeildinni. Sumarið 2001 byrjaði hörmulega fyrir Fram en liðið fékk aðeins 4 stig út úr tíu fyrstu leikjum tímabilsins. En við tók magnaður endasprettur þar sem Fram náði 16 stigum út úr síðustu átta leikjum sínum og bjargaði sér frá falli með 5-3 sigri á Keflavík í lokaleiknum. Haustið 2002 var mjög svipað. Fram var í vondum málum fyrir þrjá síðustu leikina en náði úr þeim sjö stigum, vann þá tvo seinni með markatölunni 8-4 og bjargaði sér á markatölu á kostnað Keflvíkinga. Í fyrra var Fram í botnsætinu fyrir lokaumferðina en með 1-0 sigri á Þrótti felldi liðið ekki bara Þróttara heldur stökk upp um þrjú sæti og endaði í sjöunda sæti í deildinni. Framarar hafa því náð í 13 stig af 15 mögulegum út úr lokaumferðinni síðustu fimm ár og alltaf bjargað sér frá falli.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Fleiri fréttir Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi England - Gana | Blandar Kane sér í baráttuna um Gullskóinn? Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Grindavík/Njarðvík - Víkingur | Hörð barátta um miðja deild FH - Valur | Kemst FH aftur á toppinn? Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Dagskráin í dag: Tveir leikir í Bestu deild kvenna og Bestu mörkin Sjá meira