Valur og Þróttur í úrvalsdeild 18. september 2004 00:01
Keppni í 1. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu lauk í gær. Valur og Þróttur fara í deild þeirra bestu en Njarðvík og Stjarnan féllu niður í 2. deild. "Þetta var ekki upp á marga fiska en það dugði til og nú spilum við í Úrvalsdeildinni að ári," sagði Njáll Eiðsson, þjálfari Valsmanna en þeir lyftu 1. deildarbikarnum á loft í gærkvöldi eftir 1 - 0 sigur á Fjölni úr Grafarvogi. Hlutskipti Njarðvíkur og Stjörnunnar var öllu verra, bæði lið féllu niður í aðra deild. Þróttarar úr Reykjavík fylgja Valsmönnum upp. Leikur Vals og Fjölnis var litlaus, eins og svo margir aðrir leikir hafa verið í sumar, og viðurkenndi Njáll það fúslega. Hann vildi þó meina að lið sitt ætti fullt erindi í Úrvalsdeildina á næsta tímabili. "Auðvitað þarf að mörgu að huga en hér er góður efniviður og með réttum hugsunarhætti verðum við aldeilis tilbúnir næsta ár. Nú er þetta búið í bili og við erum með bikarinn en það er sérstakt afrek að fara með liðið upp í þriðja sinn. Það sýnir að það er töggur í strákunum og við siglum öruggt upp með 37 stig." Njáll sagði gengi Vals í sumar hafa verið upp og niður og ekki alltaf gengið samkvæmt áætlun, en öllu skipti að komast þangað sem ætlunin var að í upphafi mótsins og því sé hann stoltur af strákunum. Þróttur Reykjavík fylgir Völsurum upp þrátt fyrir jafntefli gegn Njarðvík sem þurfti nauðsynlega á öllum stigunum að halda til að bjarga sér frá falli. Þeir höfðu jafnmörg stig og Haukar en með mun lakari markatölu og falla því í aðra deild ásamt Stjörnunni sem tapaði 6 - 1 fyrir HK í Kópavoginum. Urðu þeir neðstir í 1. deild með 18 stig og 17 mörk í mínus. KS og Víkingur Ólafsvík fara upp úr 2. deild og taka stöður Hauka og Stjörnunnar að ári. Lokastaðan í 1. deild: L U J T Mörk Stig Valur 18 11 4 3 35-14 37 Þróttur R. 18 8 6 4 31-23 30 HK 18 9 1 8 28-28 28 Breiðablik 18 7 5 6 31-31 26 Þór 18 5 10 3 19-16 25 Völsungur 18 6 4 8 27-29 22 Fjölnir 18 7 1 10 27-32 22 Haukar 18 4 7 7 27-27 19 Njarðvík 18 4 7 7 21-29 19 Stjarnan 18 5 3 10 28-45 18
Íslenski boltinn Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Fleiri fréttir Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi England - Gana | Blandar Kane sér í baráttuna um Gullskóinn? Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Grindavík/Njarðvík - Víkingur | Hörð barátta um miðja deild FH - Valur | Kemst FH aftur á toppinn? Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Dagskráin í dag: Tveir leikir í Bestu deild kvenna og Bestu mörkin Sjá meira